Blogger
Hérastubbur Bakari
On Blogger since: January 2007
Profile views: 491

About me

GenderFemale
LocationIceland
InterestsBloggsíðu þessa helga ég útivist og áheitum um bætta heilsu. Þegar alvarleg veikindi banka á dyr er stundum fátt hægt að gera nema biðja heitt fyrir hinum veika. Ég ákvað einnig að ganga á fjöll - hóla - hæðir til góðs fyrir veikan bróður minn þegar hann veiktist haustið 2006. Byrjaði þá jafnframt að blogga á moggablogginu. Fann þessa fínu bók sem heitir "Íslensk fjöll - gönguleiðir á 151 tind" eftir Ara Trausta Guðmundsson og Pétur Þorleifsson. Það er mikil hjálp í henni fyrir utan hve fróðleg hún er. Fikra mig áfram eftir því sem færð og veður leyfir. Helstu hólar og fell í nágranni Hafnarfjarðar hafa verið sigruð s.s. Helgafellið, Stórhöfði og Húsfellið - meir að segja Ásfjallið! Helgafellið í Mosó, Trölladyngja, Sýrfellið, Festarfjall o.fl. Gekk á gönguskíðum inn í Kerlingardal í Bláfjöllum. Tindarnir bíða betri tíma enda lofthrædd kona með eindæmum (allavega ef börnin eru með í för). Svo er ég líka raunsæ og veit að suma tindana mun ég aldrei klífa. Hálka, snjór og slabb hefur stundum komið í veg fyrir að brattar brekkur væru klifnar. Þá er bara að reyna að finna mjög hættulitla hæðir eins og Sýrfellið á Reykjanesinu. Á það var gengið í gullfallegu veðri á nýársdag. Félagsskapurinn er alltaf góður. Ef enginn tvífættur nennir með mér get ég alltaf treyst á fjórfætta heimilisvininn, hann Sám minn. Hann hefur farið með í allar ferðirnar og skemmtir sér konunglega. Allar tillögur að gönguferðum eru vel þegnar en reyndar á ég enn eftir um 140 tinda ef farið er eftir bókinni. Þriggja ára áætlun myndi ég ætla.
Google apps
Main menu