Leikhús andanna

My blogs

About me

Industry Arts
Occupation Theatre
Location Reykjavík, Iceland
Introduction Verkið fjallar um það þegar maður hittir konu / kona hittir mann. Það fjallar um vondar tímasetningar og fullkomin augnablik. Það fjallar um fólk sem er svo hrætt við að skuldbindast að það getur ekki einu sinni átt pottablóm. Það fjallar líka um fólk sem heldur svo föstu haldi í skuldbindinguna að það týnir sjálfu sér. Það fjallar um að vera snúið á rönguna og neyddur til að sjá sjálfan sig í nýju ljósi – ljósi með maður hefði síst kosið sér sjálfur. Það fjallar um lífeðlisfræðing sem heldur því fram að ást sé röð taugaskilaboða, myndlistamann sem elskar tvær konur í einu, ljósmyndara sem býr yfir myrku leyndarmáli og ástkonu með sólgyllta útlimi. Það er rifist, hlegið, daðrað, drukkið, öskrað, strippað, málað, elskast, saknað og leitað. Það er dansað á helstu málefnum tilverunnar. Dansaðu við mig. Frumsýnt í Iðnó 24. október 2008