Ingólfur Sigurðsson
My blogs
| Location | Reykjavík, Iceland |
|---|---|
| Introduction | Ég heiti Ingólfur Sigurðsson og er fæddur í Reykjavík 8. desember 1960. Ættir mínar á ég að stærstum hluta að rekja til svæðis sem nær frá Kirkjubæjarklaustri austur til Djúpavogs. Frá 5 ára aldri dvaldi ég öll sumur á bænum Flugustöðum í Álftafirði ekki langt þar frá sem dökkar dísir drápu Þiðranda son Síðu-Halls forðum. Skólaganga mín hófst í vorskóla hjá Séra Árilíusi Níelssyni en síðan lá leiðin í Austurbæjarskólann þar sem ég var í 4 vetur. Næstu 3 vetur var ég í Breiðholtsskóla og fór svo í Réttarholtsskóla þar sem ég tók landspróf. Einn vetur tók ég í Menntaskólanum við Sund en fór síðan að læra bakstur í Álfheimabakaríi. Lauk námi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1983 og tók sveinspróf í bakaraiðn sama ár. Meistararéttindi í iðninni fékk ég 1986. Það sama ár hófum við hjónin ásamt tengdaforeldrum mínum rekstur bakarís í að Hólmaseli 2 í Breiðholti. Bakaríið var skírt Krás. Sá rekstur stóð óslitið til ársins ´95 er honum var hætt. Vorið ´96 tók ég að mér að stýra uppsetningu á nýrri bakaradeild við sameinaðan HHótel- og matvælaskólann sem verið var að byggja við Menntaskólann í Kópavogi.störf sem bakari |

